mánudagur, október 14, 2002

Helgin

Á laugardaginn var unglingadeildar-slutt hjá Siggu en reyndar mættum við voða fá en það var bara gaman:) Við spjölluðum og fórum svo eitthvað að fíflast í tölvunni. Tókum einhvern helling af myndum en fengum við svo þá hugdettu að fara í bæinn að skoða skotana. Það var ekkert smá gaman, skotarnir í fíling og flestir sögðust hafa skemmt sér rosalega vel!!! Einn 43 ára skotinn var að spjalla við okkur og sagðist hafa fylgt skoska liðinu allt sitt líf, en aldrei skemmt sér eins mikið og hérna á Íslandi, og í hans eigin orðum þegar ég spurði hann "How do you like Iceland?" Þá sagði hann " I luv it, its's fucking greeat!!!!!" Þannig að það var stuð:)

Eftir að hafa komið heim klukkan 4 um morguninn var ég vakinn upp af símhringingu frá Siggu klukkan hálf ellefu daginn eftir, hún var að vekja mig til þess að mæta í göngu... ég leit á klukkuna og til þess að reyna að koma mér frá því að fara í gönguna þá sagði ég að ég væri orðin allt of sein og það tæki mig ekki að fara ( það eina sem mig langaði til að gera var að fara aftur að SOFA!!!) en nei, Sigga sagði "Þú kemur mar...." og ég gat ekki verið sú eina sem mætti ekki, þannig að ég dreif mig á fætur og var tilbúin eftir hálftíma:)

Þetta var samt rosalega gaman þegar ég loksins kom mér á stað!!!!! Þannig að takk Sigga fyrir að vekja mig, og takk Hrólfur fyrir að sækja mig:)

Árshátíðin
Árshátíðin er svo núna á fimtudaginn og mér er farið að hlakka rosalega til!!! Þemað fengum við að vita í dag en það var hin spænskumælandi heimur og nafnið er "La fiesta". Þegar við komum svo niður í Cösu í morgun var búið að skreyta allt voða fínt og þetta verður örugglega svaka gaman. Fyrst förum við í mat á Broadway þar sem verður rosalegur flottur matur og skemmtiatriði, svo fer bekkurinn minn, 4Z, upp í Hafnafjörð í partý og svo aftur á ballið á Broadway. Þar sem að það er hefð að bjóða einum kennara þá ákváðum við að bjóða Burkna stærðfræðikennaranum okkar. Hann kom líka til okkar þegar ég var í 3. bekk sem var mjög skondið, einkum vegna þess að við helltum hann blindfullan;) en allavega, þetta verður örugglega svaka stuð í salsa sveiflu;)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home