Lífið
Í dag, finnst mér allt brosa við mér!! Lífið er bara eitthvað svo fallegt í sinni einföldustu mynd! Ég brosi þegar ég lít út um gluggann að fyrsti snjórinn hefur fallið. Ég brosi um leið og ég hlusta á Gipsy Kings syngja á spænsku. Og ég fyllist gleði, von og krafti:) Lífið er bara eitthvað svo æðislegt!!!!!:) Njótum þess og brosum, því "lítið bros getur dimmu í dagsljós breytt"!!!! Lífið er stutt, það tekur því ekki að sitja í sorg og sút og fýlu. Við verðum að njóta þess sem við höfum og ekki hugsa alltaf út í ef ég hefði þetta og ef ég hefði hitt, eða ég vildi að ég hefði frekar gert þetta eða sagt hitt. Það þýðir ekki, við getum ekki breytt því sem er lifið, við verðum bara gera sem best úr því sem við höfum og njóta stundarinnar.
"Er lífið ekki hundrað sinnum of stutt til þess að láta sér leiðast?"
Friedrich Nietzche
"Er lífið ekki hundrað sinnum of stutt til þess að láta sér leiðast?"
Friedrich Nietzche
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home