sunnudagur, október 27, 2002

SKO

Í gær þá ætlaði ég bara að gera ekki neitt, en svo hringdu Sigga, Svenni, Sverri og Stebbi (the four s-es;) og spurðu mig hvort að ég vildi ekki kíkja upp í bústað með þeim! Þannig að ég lagði af stað klukkan hálf eitt að leita að földum bústað sem ég hafði ekki hugmynd um hvar væri. Í niðamyrkri upp á heiði, með háu ljósin á og útvarpið í botni tókst mér einhvern veginn að finna réttan afleggjara eftir að hafa keyrt fram og til baka í nokkurn tíma. Svo einhvern veginn fann ég bústaðinn jafnvel þótt að S-UMIR svöruðu ekki í símann;) Ég var samt líka næstum því búin að keyra út af, því ég bremsaði lauslega á lausamöl (hahahah, S-in fatta þennan;) og það var eins og að keyra í hálku! Ég komst nú samt einhvern veginn á áfangastað slysalaust:)

Svo var bara geðveikt kósý í bústaðnum! Ekkert nema aulabrandarar, sem voru svona lúmsk fyndnir:) og Svenni var að verða brálaður. Við fengum pepsi-blue... og bjuggumst þess vegna öll við að deyja eða það að húsið myndi springa þegar við settum blátt pepsi á arineldinn:) Ég fór svo til baka klukkan eitthvað korter í fimm, og sem betur fer keyrði ég ekki á neitt né út af:)

Svo eitt heilræði, þegar þú gengur niður stiga
Mind the step!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home