þriðjudagur, október 22, 2002

Tíminn flýgur hratt....

Vá, það er alveg hellings tími síðan ég bloggaði síðast..... Hvað kom eiginlega fyrir?? Já segið þið mér nú.....En tíminn flýgur hratt og þið fáu sem lesið bloggið mitt hérna, takk:) ég fékk einmitt sms frá dyggum aðdáanda í gær sem spurði hvort að ég væri strax hætt að blogga..... ó nei ó nei.... takk minn kæri aðdáandi;)

Allaveganna..... Hvað hefur gerst.......

Árshátíðin
Það var virkilega gaman á árshátíðinni!!!!! Ég skemmti mér ekkert smá vel!!! Ég byrjaði morguninn á því að vakna klukkan 6 (já 6!!!!!!) til að baka pönnukökur, því að ég var búin að bjóða stelpunum í morgunkaffi, sem tókst bara ágætlega jafnvel þótt að við þyrftum að vakna soldið snemma........

Seinni parturinn hófst svo á því að fara til Steinunnar og þar sem við tókum okkur til saman, plús að gera smá tilraunir með ákveðinn drykk og sprite, sem kom bara mjög vel út:) Eftir það, fórum við heim og hver var þá ekki þar nema amma mín og afi, og auðvitað var amma náttla að taka mynd af barnabarninu sínu( mér;) og Steinunni. Soldið skondið, amma er svona gvöð-minn-góður manneskja, sítalandi, brjálæðislega hrædd í bíl (nema eitt skiptið þegar afi veiktist og hún fór djúpið sem er ekkert nema malarvegir á 120!!! já hún amma mín getur líka verið kúl:) en hún er alveg æðisleg amma!!! Allavega, eftir það keyrði Erla Björk okkur Steinunni í matinn. Við vorum svona fashionable-late eða um klukkutíma of seint.... Sem reyndist svo vera allt í fínu lagi, þar sem það var ekki byrjað á matnum, og fólkið sem kom fyrst orðið leitt á að bíða. Maturinn var mjög fínn, ísinn sérstaklega, og skemmtiatriðin voru alveg ágæt. Mér fannst árshátíðarmyndin mjög góð, enda eins gott því að við þurftum að bíða alveg í um 3 korter eftir henni þar sem video-nefndin var enn að klippa!!!

Svo var haldið í partý til Halla í Hafnafirði..... við komumst á áfangastað eftir að hafa tekið nokkra hringi á hringtorgum Hafnafjarðar..... en strákarnir (Eiríkur og Hlynur) gátu ekki ákveðið sig hvar ætti að fara út úr hringtorginu. En það var virkilega gaman í partýinu!!! Við fengum samt ekki Burkna til að drekka nema eitt staup af tequila, hann sagðist þurfa að keyra seinna um kvöldið.... held að hann hafi ekki viljað láta okkur missa virðinguna fyrir sér, þar sem það er nógu erfitt að láta okkur þegja í stærðfræði tímum;)!!!! En hann var samt í stuði og dansaði með okkur final countdown. Annars var bara rosaleg stemming í þessum "nýja bekk" mínum. Og ég er bara virkilega sátt með bekkinn minn, en þetta er allt saman gæðafólk, og vil ég þakka þessu fólki innilega fyrir skemmtilegt kvöld:)

Ballið var svo eftirminnilegt, en það grætur það enginn að sjá Ragga Bjarna tjútta með milljónamæringunum, eða þá smá stemmingu með Páli Óskari og Bjarna Ara. En það var rosalega gaman að sjá alla í sínu fínasta pússi að skemmta sér vel.

Eftir ballið plöggaði ég Erlu Björku yndislegustu systur mína( á bara eina....;) til að sækja mig. Við keyrðum líka hann Jón heim sem svaraði mörgum forvitnilegum spurningum mínum sem verða ekki hafðar eftir hér.....;)

En þetta var sem sagt mjög eftirminnilegt kvöld!!

Helgin
Á föstudeginum gerði ég ekkert nema að SOFA!!!! Ég sem ætlaði að vera svo dugleg, en hey, ég átti skilið að sofa:) Um kvöldið fór ég að vinna, það mættu um 10 krakkar!!! Frekar margir miðað við venjulega, en ég hef upplifað nokkur kvöld þar sem að það mætir akkúrat ekki NEINN!!!!! En svona fyrir ykkur sem vita ekki þá vinn ég í Félagsmiðstöðinni í mosó... Með yndislegum 8-10 bekkingum.;)

Um helgina var ég svo á skyndihjálparnámskeiði, sem gekk bara mjög vel. Á sunnudeginum fékk ég að leika sjúkling fyrir unglingadeildina, en þau áttu að æfa sig í að bjarga fólki......Ég átti að vera ökklabrotin og þegar þau voru að flytja mig inn í skýli tók ég smá móðursýkiskast á greyið stráknum sem var að flytja mig inn, þannig að þetta var soldið fyndið, og greyið strákurinn vissi ekkert hvað hann átti að gera, en hann reddaði sér annars bara mjög vel út úr þessu.....:)

Pælingar
En svo var ég að pæla.....skrýtið hvað tónlist getur vakið upp mismunandi tilfinningar.... ég var einmitt að hlusta á lag á spænsku sem ég hlustaði mikið á úti og allt í einu komu upp margar mismunandi minningar svona allar í einu! Eins með lykt, skrýtið hvernig heilinn tengir lykt við ýmsa hluti. Td. þegar ég finn ákveðna lykt hugsa ég alltaf um húsið hennar ömmu, eða man kannski þegar ég var að baka í sveitinni þegar ég var 12 ára....ég ætti kannski bara að vera heilaskurðslæknir......

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home