mánudagur, nóvember 11, 2002

þetta er ekkert sniðugt

Ég er soldið sár yfir því að hafa ekki haft næginlegan tíma til að sinna björgunarsveitarstarfinu!!!! Og mér sem finnst svo gaman að mæta og gera allt sem tengist því starfi, en undanfarið hef ég einfaldlega ekki gefið mér næginlegan tíma til að sinna því starfi!! Reyndar þegar ég hitti fólk á förnum vegi og það spyr:" Jæja, hvað er svo að frétta af þér?" þá hef ég ekkert merkilegt að svara, það eina sem ég segi er "ja, tja, sko, eila allt brjálað í skólanum sko....". Ég get ekki einu sinni sagst hafa verið að labba upp á fjall með björgunarsveitinni eða hjálpa til í húsinu sem núna er á lokastigi, og ég ætti að vera að vinna á fullu í. En málið er að það er bara eitthvað brjálæði í gangi í skólanum!!! T.d. í þessari viku, þá þarf ég semsagt að fara í 3 veigmikil próf, þar af 2 af þeim á sama degi, sem er akkúrat daginn á eftir fund í björgunarsveitinni og ég vil gjarna mæta á þann fund, eða það er að segja fara að vinna upp í húsi kvöldi áður, en 2 próf, efnafræði og líffræði, sem hafa ekkert runnið allt of ljúflega inn í hausinn á mér í vetur og þarfnast mikinns lestur! Plús það að ég þarf að gera fyrirlestur fyrir föstudaginn!!!!!!!! Og mér finnst ég vera að skapa móral í deildinni af því að ég mæti ekki, en það er ekki það að ég vilji ekki mæta! Alls ekki, því að vera í björgunarsveit er mitt aðaláhugamál! En einhvern veginn gengur skólinn fyrir öllu, sem að sumir myndu kannski segja gott, en þegar maður hefur varla tíma til að gera neitt annað en að læra, þá hlýtur eitthvað að vera skrýtið!!! Mig langar því að biðja alla þá, sem lesa þessa síðu úr björgunarsveitinn minni (ef ég má enn kalla hana svo...) afsökunar. Því ég ætlaði alls ekki að skapa neinn móral, þetta skal bætt upp, og ég er þegar búin að tileinka öllu því sem kallast milli jóla og nýárs flugeldasölu!!! Dag sem nótt!! Ég ætla líka að reyna að mæta eins og ég get, til dæmis eins og næstu helgi, því það er ekki búið að setja nema 1 próf fyrir þá (þ.e.a.s. ennþá! )

En já, það er kannski best að fara að snúa sér að sögunni! Og lesa eitthvað fyrir þetta bjánans próf á morgun...... ég hef komist að einu og afsakið slettuna, en það er að life is tough. En já...........

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home