þriðjudagur, nóvember 12, 2002

Hafragrautur

Hafragrautur er merkilegt fyrirbæri. Þú getur bæði eldað hann í potti og örbylgjuofni. Hann getur verið þykkur eða þunnur allt eftir því hvernig ÞÚ vilta hafa hann. Lítið saltaðan, eða mikið saltaðann. Hann er ekki mjög orkuríkur en þér líður vel eftir að hafa borðað hann (það er að segja þeim sem yfir höfuð borða hafragraut!) og svo er hann alls ekki þungur í maga. Í mínum huga er hann sér-íslenskur, jafnvel þótt hann sé örugglega til á mörgum öðrum stöðum í heiminum. Sumum finnst hafragrautur mjög vondur, mér þykir hann góður. Á hinn bóginn, þá er ég kannski bara eitthvað skrýtin.....

En já, ætli þetta sé ekki steiktasta blogg sem ég hef skrifað á þessarri síðu......

en allavega hvað finnst ÞÉR um hafragraut??? Láttu ljós þitt skína hér fyrir neðan, á nýja athugarsemdarkerfinu mínu;)!!!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home