Heimspeki
Fyrir um það bil 4-5 árum, var ég vön að skrifast á heimspekilegum bréfum við vinkonu mína Unu í gegnum email, jafnvel þótt að hún byggi í sama litla Mosfellsbæ og ég. Það var einstaklega gaman og skemmtilegt, og stundum urðu bréfin margar, margar blaðsíður með miklum pælingum og heimspekilegum þönkum. Þessi bréf voru öll inn á tölvunni minni áður en hún hrundi, en sem betur fer hafði ég prentað þau öll saman út áður en sá óhappilegi atburður gerðist. En þau eru nú, einhversstaðar niðrí kassa, en ég hef ekkert verið að kíkja ofan í kassa síðan ég kom heim frá útlandinu. Ég sakna þessara bréfa mjög, kannski mun ég taka það upp aftur að skrifa henni Unu bréf, þar sem ég sé hana hvort sem er ekki það mikið. Já, svo ætla ég mér að finna þessi bréf, fljótlega, og þá mun ég koma með skemmtilega tilvitnanir úr þeim bréfum, en ætli ég þurfi ekki að fá leyfi hjá háttvirtum höfundi, henni Unu. En þangað til, mun ég blogga eitthvað í millitíðinni.
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home