Helgin
Kannski rétt að minnast aðeins á helgina, svona í miðri viku, rétt áður en hin næsta kemur. Á föstudaginn gerði ég akkúrat ekki neitt....... og ekki meira að segja um það. Laugardagurinn virtist svo ætla að verða eitthvað svipaður en nei ó nei, ég fékk boð um að koma í partý:) En ég villtist í Kópavogi að leita að því, en ég komst loks á áfangastað, en teitið var einmitt hjá henni Þuru hans Hilmis, og ég þakka henni gestrisnina í innganginum, þar sem að þegar ég var að koma voru allir að fara ( hmmm....er það kannski skýringin..???). Þeir sem gengu út voru Bragi, gaggóvinur með meiru, Markús og Jón Eðvald. Þeir sögðu mér að leiðin lægi næst á Grettisgötuna, þar sem fyrir væri gleðskapur mikill og dauður vinur. Við lögðum því á stað í teitið til að gleðjast og sækja dauðan vin, sem reyndist svo ekkert dauður, heldur sprelllifandi og hress. Sem sagt algjör partýpinni. En já, meðal annars í þessu teiti þá brotnaði hurðin af baðherberginu, og allt í skrolli. Og nágrannarnir á neðri hæðinni gerðu bara illt verra, tóku hurðina alveg af hjörunum og vildu svo ekki lána húsráðanda skrúfjárn. Enda endaði það á því að skellt var á eftir nágrönnunum með þeim afleiðingum að þeir voru nærri dottnir niður stigann, sem var mjög brattur. Einnig var svefnherbergishurðin grunsamlega mikið lokuð....hmmmmm... þannig að þetta partý snerist mjög mikið um lokaðar hurðir og hurðir sem EKKI var hægt að loka...... En Svo virtist sem Nanna nokkur húsráðandi hefði fengið nóg af gestunum eftir nokkurn tíma, og þar sem að ég vildi alls ekki valda neinu veseni, og mér hafði ekki beint verið boðið í þennan gleðskap af húsráðanda, þá ákvað ég bara að fara. Ég þakka samt Nönnu fyrir skemmtilegt teiti og áhugavert!! Ég skutlaði Markúsi heim, og svo sótti ég hana systur mína, sem hafði verið á einhverju leiklistardjammi niður í bæ. Við spjölluðum saman mikið mikið, og þar sem hvorug okkar nennti heim, var tekinn gríðarstór rúntur um Mosfellsbæinn.
Svo kom sunnudagur. En þá byrjaði ég á því um kvöldið að skella mér á stelpu-kvöld í bekknum mínum, þar sem að við pöntuðum pizzu, spiluðum og spjölluðum og slúðruðum og lékum við hundinn Ask sem ég kalla alltaf Vask. En gestgjafi okkar var einmitt Eva, og vil ég þakka henni fyrir:) Eftir það skellti ég mér í bíó með helmingnum af bekknum, en það mættu 12 að ég held..... Við fórum að sjá The master of disguese, sem var bara nokkuð skondin, og var betri en ég átti von á. En samt fannst mér þetta spólumynd.......... hún var samt frekar fyndin....... Allavega eftir það fór ég bara heim að sofa, og þar með var helgin búin og ný vika hófst.......

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home