fimmtudagur, nóvember 28, 2002

Já

Að skrifa jólakort er fínt, ef maður þarf ekki að skrifa of mörg í einu, því að þá verða þau öll eins, og ekkert gaman og maður verður leiður á að skrifa. Ég er búin að skrifa tvö, og á alveg heila gomsu eftir sem þarf að fara í póst á morgun ef þetta á nú einhvern tímann að komast yfir haf. En mig vantar smá hjálp, ég ætla að gefa vinkonu minni í bandaríkjunum bók, í afmælisgjöf, samt ætla ég ekki að senda hana fyrr en í janúar. Allavegann mig langaði að gefa henni eitthvað íslenskt, og sá þá tvennt á ensku : Sjálfstætt fólk eftir Halldór Laxness og hins vegar Laxdælu. hvað finnst ykkur? eða ætli aðrar Íslendingasögur séu ekki til á ensku líka...... svo held ég að englar alheimsins séu líka til...... æj, ég er í algjörum vandræðum, reyndar soldið langt í að ég þurfi að leysa þetta, en ég var bara að pæla...... Þannig að endilega segiði mér hvað ykkur finnst....:)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home