Öfundsýki
Öfundsýki er eitthvað ósköp mannlegt og venjulegt sem við höfum öll lent í! Það er eitthvað sem nagar okkur að innan, og er alls ekki góð tilfinning. Í dag er ég öfundsjúk, og það finnst mér ljótt að segja, því það er einhvern veginn innprentað í mann að maður megi ekki vera öfundsjúkur. Og vegna þess finnst mér fáránlegt að ég skuli vera öfundsjúk, jafnvel þótt að það sé kannski einkar venjulegt og mannlegt. Mér líður eins og að ég hafi alls ekki rétt á því að vera full af öfund, og mér finnst orðið öfund mjög neikvætt. Annars verð ég að taka fram að ég verð ekki oft öfundsjúk, en það kemur fyrir. Ég get því miður ekki tjáð ykkur hvað það er sem ég varð allt í einu öfundsjúk út af, því ég vil ekki gera mig að fífli! Þið munuð þá því miður aldrei, hvað veldur þessari öfund minni.....!!!!! Já, lífið er skrýtið!
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home