miðvikudagur, nóvember 13, 2002

Sakamál Hacky-sack-s boltans

Nýji Hacky-sack boltinn sem strákarnir í 4 Z lögðu allir saman í púkk fyrir um daginn er horfinn!! Aðrir vilja meina týndur!! Sá grunaði er Sigurjón nokkur, alias Grjóni (hacky-sack=grjónabolti-Grjóni; furðulegt hvernig þetta tengist allt saman....dularfullt) sagði grjónaboltann ekki týndan og hélt hann því fram að hann vissi nákvæmlega hvar boltann væri að finna. Hann sagði að boltinn væri "einhver staðar".........

Ef einhver getur upplýst mig um hvar "einhver staður" er, þá vinsamlega hafið samband, þannig að strákarnir í 4Z geti tekið gleði sína á ný!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home