miðvikudagur, desember 11, 2002

Líflegt jólaprófsumhverfi

Ó já og já, hver segir að það sé allt dauft í kringum mann þegar hin ógnvekjandi jólapróf standa yfir. Hér í herberginu mínu hafa markverðir og líflegir hlutir gerst. Má þar fyrst nefna að lítil fluga ein, sem hefur haldið mér félagskap yfir próflestur, er horfin!!! Hún var vön að flögra í ljósum herbergisins, og suða smá í leiðinni. En nú er hún horfin, blessuð sé minning hennar.

Í herbergi mitt kom líka í heimsókn einn stórskemmtilegur Dordingull sem kallaði sig Dolla dordingul. Hann kíkti akkúrat í heimsókn þegar ég hafði skroppið upp til að ná mér í kaffi, og þegar ég kom niður var allt í einu dordinguls-vefur (nú ekki var það köngulóarvefur!!!) frá loftinu og niður á borðlampann minn! Hann var nú samt því miður frekar óskemmtilegur, en ég sönglaði nú samt Ó Jesú, bróðir besti um leið og ég horfði á hann hverfa niður í iðu klósettsins.

Annars lagið kemur líka köttur einn, sem bróðir minn kallar bjánaköttinn, og vælir fyrir utan gluggan minn. Svo horfir hann á mig með sínum stóru sakleysislegu augum og segir MJÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁ og þrýstir nefinu upp að rúðunni. Þá langar mig helst að hleypa honum inn og klappa honum, en ég er með ofnæmi, þannig að ég hvæsi snökkt hann og hann hrökklast í burtu, greyið bjánakötturinn. Hann breimar líka, þannig að stundum heldur hann fyrir mér vöku, en það er fínt, heldur mér vakandi við lærdóminn.

Svo komu aðeins stærri lífverur í heimsókn til mín, eða það eru að segja á gluggan, en ég er í herbergi sem er niðurgrafið í kjallara. Eitt skiptið tók ég eftir einhverju hvítu hreyfast fyrir utan gluggan hjá mér, og hélt áfram að stara (hver veit, kannski hefði þetta getið verið einn jólasveinnanna sem hafði villst til byggði of snemma......!!!!!), og allt í einu mæta augu mín augum púka eins! En hann glennir upp glyrnurnar um leið og hann sér mig, segir ó sjitt, og hleypur í gegnum tréin ásamt púkavini sínum.(NB. púki (ísafirði)=strákaormur=strákaóbermi/óféti=krakkapjakkar) Á meðan hlæ ég djöfullegum hlátri og sný mér svo aftur að bókunum.

Já, sei sei, það er ekki svo slæmt að vera í jólaprófum. Annað hvort það eða ég er að missa vitið.........

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home