laugardagur, desember 14, 2002

Lottó

Ég keypti lottó-miða áðan.... ef ég vinn, þá gef ég öllum þeim sem commenta hér fyrir neðan heilan sleikjó!!!! Nei, enn betra, ég skal gefa ykkur TVO heila sleikjóa (er þetta rétta beygingin?? er til eitthvað annað orð yfir sleikjó annað en sleikjó....og sleikibrjótsykur????) Og þeir sem skrifa (eða hafa áður skrifað) í gestabókina fá ÍS!!!!

Ég asnaðist líka, bara svona upp á grínið, til að kaupa mér eina lottóröð með tölum sem heppin Bólskírteinis-hafi sagði mér að myndu koma. ( Bólskírteini=félagskírteini í félagsmiðstöðinni Ból í Mosfellsbæ!!!!!) En þetta var soldið fyndið, fyrir svona 2 mánuðum fengu allir sem mættu á diskótek í Bólinu happdrættismiða, og þegar kom að aðalvinningnum sagði hann bara, dragðu númer 7 og við drógum númer sjö og hann fékk skírteinið sitt endurgreitt. Það sama gerðist í gær, hann sagði einfaldlega dragðu númer 14, og hann vann aftur!!!!!! og hann hefði átt að fá skírteinið sitt endurgreitt aftur en hann fékk í staðinn súkkulaði og kók! Ég ákvað þessvegna, bara svona upp á grínið, að spyrja hann hvaða tölur kæmu í lottóinu í kvöld.......

Allavega, krossiði nú fingurnar fyrir því að ég vinni stóra pottinn í lottóinu!!!:)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home