föstudagur, desember 13, 2002

Smávegis

Það er komin helgi, samt er þetta ekki frí helgi, ó nei ó nei!! Eins og Markús sagði þá er þetta eiginlega ekki helgi. En samt sem áður þá þarf ég ekki að stressa mig yfir að það sé próf á morgun, eða hinn, bara á mánudaginn. Allavega, mig langaði til að nota tækifærið og þakka nokkrum manneskjum, fyrir mismunandi hluti.....

Mig langar að þakka Hilmi fyrir að gefa mér síðasta súkkulaðið sitt, sem hann gaf mér áður en ég fór í ólesið stærðfræðipróf, það veitti mér mikinn styrk í þessu annars ósvífna stærðfræðiprófi. Takk Hilmir!!

Erlu Björku, hinni háverðugu systir, sem kemur mér svo oft til að brosa þegar ég er að farast úr stressi. Eins barasta allri fjölskyldu minni og vinum og vinkonum. Ég veit að ég er hryllileg þegar kemur að prófum, svo takk fyrir að þola mig!!!!!!!!!!:)

Og svo takk Hrólfur fyrir þessa mjög svo góðu Betty Crooker köku sem þú bakaðir í gær:) Hún var mjög góð!!!! Hvað ertu eiginlega að gera á félagsfræðibraut? Þú ættir að vera í kokknum eða bakaranum í MK:)!!

Annars bara þrjú próf eftir..........

Orðtak taksins: "Þetta reddast......."

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home