mánudagur, desember 09, 2002

Stress

...er ekkert sniðugt. Síðastliðna daga er ég búin að vera svo stressuð að mér verður stundum óglatt, og svo bætir það ekki ofaná að mér hefur aldrei gengið eins illa á nokkurri próftörn á ævi minni. Til dæmis í dag, þá starði ég bara á prófið....... og hafði ekki hugmynd um hvað ég ætti að skrifa, eða hvaða reglu ég átti að sanna. Úff, en sem betur fer eru bara, ja tja, 7 próf eftir....... Ætli ég komi ekki út úr prófunum ein sköllótt taughrúga!!!! Og ef svo fer (og það virðist allt stefna í það) myndi ég vera þeirri manneskju ævinlega þakklát sem gæfi mér hárkollu í jólagjöf!!!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home