sunnudagur, desember 08, 2002

Stærðfræði

Ó já og já, nú er stærðfræði próf bæði á mánudag og þriðjudag. Lesin á mánudag og ólesin á þriðjudag. Jafnvel þótt að ég viti að kunna að fara með sannanir utan af eigi KANNSKI einhvern tíman eftir að hjálpa mér í starfi mínu í framtíðinni þá get ég einfaldlega ekki séð það núna! Það gæti verið vegna þess að ég er að læra heilar 19 sannanir og 19 skilgreiningar fyrir morgundaginn, og það að ég sé mig einfaldlega ekki í næsta atvinnuviðtali:

Einhver: " Já, ég sé að þú hefur unnið hérna í félagsmiðstöð og bakaríi, er eitthvað fleira sem þú vilt bæta við sem gæti hjálpað okkur að ákveða hvers vegna við ættum að velja þig í starfið??"

Ég: " Já, hérna ég vil endilega minnast á það að ég get útleidd Horners-töfluna og skilgreint hallatölu....!"

Kannski er þetta bara ég að vera neikvæð, kannski er þetta bara ég að vera leið á að læra sannanir og skilgreiningar og sjá ekki fram á notagildi þeirra...... allavega ekki núna, vonandi seinna. Því að þær hljóta að hafa einhvern tilgang.........eða er þæggi.....???

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home