Ég í hnotskurn
Það er stærðfræðipróf á morgun. OG í fyrsta skipti í langan tíma, þá á ég einhvern möguleika á því að fá hátt á því prófi. EN, eins og venjulega þá virðist mín alltaf einhvern veginn klúðra því..... Og hvernig fór ég að því í þetta skipti. OK, í fyrsta lagi þá hóf ég að taka til þannig að ég gæti nú örugglega lært í herberginu mínu og komist að skrifborðinu mínu án þess að stíga á eitthvað. Einhvern veginn tókst mér að lengja þetta tiltölulega auðvelda verkefni yfir marga klukkutíma. Og svo, þegar ég loksins byrja að læra eitthvað þá finn ég allt í einu til ofsalegrar þreytu og finn mig allt í einu skríða upp í rúm og sofna..... Klukkan er 02:30... ég vakna.... veit ekki afhverju..... man allt í einu að það er stærðfræðipróf á morgun.... samviskubitið hreiðrar um sig og ég stend á fætur.... klukkan er korter í 3 um nótt og ég er á leið að læra sannanir....af því að ég er með samviskubit...... og svo stend ég sjálfa mig að því að vera að blogga..... uss uss suss.....
En fyrst ég er vöknuð, þá er kannski besta að renna yfir þetta....hvort sem það telst brjálæði eður ei....
Góða stærðfræði-nótt........
En fyrst ég er vöknuð, þá er kannski besta að renna yfir þetta....hvort sem það telst brjálæði eður ei....
Góða stærðfræði-nótt........
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home