sunnudagur, febrúar 16, 2003

Evróvisíón

Það eru allir að blogga um Eurovision. En ég verð nú bara að segja að ég nennti ekki að horfa á það... Ég er kannski líka bara asni. Ég horfði samt á fyrstu tvö lögin og svo úrslitin. Mér finnst að Botnleðja hefði átt að fara til Lettlands, hrista svolítið upp í þessari keppni, þótt ég verði nú að segja að þeir hafi samið betri lög en Euro-Visa, sem var samt stórgott. Sama um vinningslagið, mér þykir afskaplega leiðinlegt að segja þetta en mér fannst þetta frekar slappt lag....

En já, fyndið, þegar ég var að horfa á eitt af þessum fyrstu lögum í byrjuninni var stelpa að syngja Ferrari-lagið og ég kannaðist svo rosalega við hana, þá mundi ég alltí einu að hún hafði verið í sama hóp og ég á Samfés móti þegar ég var í 9 bekk! Soldið skondið, hún ég og önnur stelpa sem heitir Sólveig skrifuðumst stundum á, en ég hef ekki hugmynd hvar þessar stelpur eru í dag. Nema Ragnheiður, hún var að syngja Ferrari lagið. En talandi um lítinn heim, Róbert nokkur Gerald, skrifaði í gestabókina mína!!! Við vorum í sama bekk í barnaskóla og minnir að ég hafi verið dugleg við að klípa hann og rífa í hárið á honum þegar hann var að stríða mér! Kannski er þetta ekkert svo skrýtið, við erum náttúrulega öll skyld og búum öll á sömu litlu eynni. En gaman að heyra af löngu týndum bekkjarfélögum!!!

Og meðan ég man, ég og Sif erum farnar að tala um Reunion aftur, JS reunion. Og planið er að halda það í seinni hlutanum í mars!! Þetta kemur samt allt í ljós, og þeir sem vilja að ég láti þá vita endilega hafið samband!!!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home