mánudagur, mars 10, 2003

Jódelíhíhú

Í dag fékk ég fágætan jóðl-disk að gjöf, eða Swiss-folklore eins og hann heitir! Það var yndislegt, það var hún Erna Ferna sem gaf mér hann eftir að hafa farið í skíðaferð! OH, og ferðasagan hennar minnti helst á lygasögu, hún hitti margar heimsfrægar manneskjur og þar á meðal voru the queen of holland, Robbie"hentu í mig flösku" Williams og Tim Allen. Ekki slæmt! Hún hallaði sér víst aðeins of nálægt drottningunni og þá urðu lífverðirnir fokvondir. Úff, þetta hlýtur að hafa verið æðislegt. I envy you Erna! en ég vona að þú hafir skemmt þér æðislega vel:)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home