Læra-smæra
Það lítur út fyrir að dagurinn í dag eigi eftir að vera með þeim fyrstu sem ég fullklára að læra fyrir daginn eftir á. Þetta er stórmerkilegt, og þar sem það er bolludagur var ég að hugsa um að reyna að halda þessu áfram í framtíðinni. Það minnkar nefnilega stress, bæði dagsdaglega og fyrir próf, minnkar samviskubit, eykur kunnáttu í því sem lært er, metnaður eykst og sjálfsánægja einnig. Plús það að ég fór og tók tvær danskar bækur út á bókasafni til að reyna að bæta mig í dönsku! Já, þetta er merkisdagur, eða þ.e.a.s. gæti orðið það, því ég endurtek það einungis lítur út fyrir að ég eigi eftir að fullklára að læra. Já, þetta kemur barasta allt saman í ljóst......
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home