fimmtudagur, apríl 24, 2003

Bækur

Mikið gladdist ég í gær þegar ég gekk inn í strætó númer 115 og sá að það var búið að festa bók á hvert einasta sæti í strætónum. Og líka þegar ég sá að allir þeir sem komu inn í strætó voru bæði undrandi og brosandi. Svo þegar strætó var lagður af stað þá var svo fyndið að horfa fram í vagninn og sjá alla lesandi og aðra skiptandi um sæti til að lesa það sem þá langaði frekar til að lesa. Seinna um daginn komst ég að því að þetta er vegna Dags bókarinnar sem var í gær (Sheakspeare og Halldór Laxness fæddust víst þá), og að bækurnar verði að minnsta kosti þarna í viku, því að nú stendur einmitt yfir Vika bókarinnar. Mér finnst þetta frábært framtak og mjög sniðug hugmynd. Ég vona að líka að bækurnar fái að hanga þarna í soldinn tíma (þannig að ég geti klárað bókina sem ég byrjaði á í gær;) og í friði fyrir óvitum og skemmdarvörgum.

Gleðilegan dag bókarinnar í gær.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home