sunnudagur, apríl 06, 2003

Fermingarveislur

Fermingarveislur hafa þann tilgang nú til dags að í fyrsta lagi gefa fermingarbarninu gjafir, borða og spjalla við fólk sem þú þekkir mismikið annars vegar og hittir hins vegar misoft. Þar sem ég þekkti nú nánast ekki neinn, nema foreldra mína, þá var tilgangur þessarar fermingaveislu fyrir mig sá að gefa fermingarbarninu gjöf, borða og horfa á fólk spjalla saman. Sem betur fer vorum við fyrst til að fara. Og ég er fegin að mamma og pabbi þekktu álíka marga og ég, þannig að við sátum bara þrjú úti í horni og létum lítið fara fyrir okkur.

Annars sá ég tvífara Jay Lenos í fermingaveislunni, þeir voru sláandi líkir, nema hann vantaði svarta flekkinn í toppinn. Merkilegt nokk...

Annars finnst mér hrikalegt hversu óskammfeilin fermingarbörn eru nú til dags, ég reyndi allavega að telja sjálfri mér trú um að ég trúði á guð og jesú og það var ekki fyrr en eftir ferming að ég gerðis virkilega mikil efasemdarmanneskja. En já, nú í dag fermast mun fleiri, að mér finnst, einungis vegna gjafanna. Kannski er það bara ég í afneitun, en ég fermdist að minnsta kosti að hluta til út af trúnni!!! Og ég hlustaði á prestinn í vígslunni minni á meðan strákurinn fyrir framan mig dottaði.

En já
tilvitnun í tilefni umræðuefnisins

"Fermt barn forðast prestinn"
nafn kemur um leið og ég er búin að fletta því upp

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home