miðvikudagur, apríl 09, 2003

Jahá

Það lítur út fyrir að ég þurfi að dekkja leturgerðina, og mun það gerast fljótlega! Einnig er pæling að breyta bakgrunninum, en það verður ekki alveg strax. Já, gaman að þessu. Html færni mín eykst með hverjum deginum;) Kannski maður fari bara að búa sér til almennilega heimasíðu bráðum, með myndum og alles eins og hún Sigga gella!

Vinnan

Mætti of seint í vinnuna af því að ég var búin að gleyma að það væri starfsmannafundur. Sem betur fer var þetta ekkert svo merkilegur fundur, gekk aðallega út að það að gera at í mér, því þegar ég kom var miði sem hékk á tölvuskjánum þar sem á stóð " Elín, þú ert rekin!!! Edda" Svona er fólk fyndið í vinnunni minni. Núna eru hérna einhverjir brjálaðir sundkrakkar að flippa við teknó-tónlist. En eftir það koma líklegast stelpur á stelpukvöldið. Ef enginn kemur er ég búin að plana að les bókina Kein Schnaps für Tamara sem á íslensku myndi þýðast Enginn snafs fyrir Tamöru. Þessi merkilega bók er hins vegar til í íslenskri þýðingu undir nafninu Dauðir drekka ekki. EN þetta voru tilganglausu upplýsingar dagsins.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home