Sumarbústaðaferð
Ég hlakka alveg einstaklega mikið til, því sumarbústaðaferð er á döfinni með bekknum mínum. Eina vandkvæðið er að heitan pott vantar en við vorum ekki lengi að redda því og er planið að koma með tvær barnasundlaugar, blása þær upp og hella í þær heitu vatni. Einnig var pæling að fá "lánuð" fiskikör og nota þau sem potta, auðvitað ætluðum við að skola þau fyrst, en já margar hugmyndir eru í gangi. Gaman gaman.
Skrýtið þegar manni dettur ekkert í hug að skrifa um...
Ég er kannski að fara í bingó í kvöld.... Ég fékk nú næga æfingu um daginn, en þá var ég bingó-stjóri í Bólinu. Það var frekar súrt, líka vegna þess að einn strákurinn sem hafði fjárfest í heilum 6 spjöldum vann helminginn af vinningunum. Ég held að það ætti að banna heppnu fólki að spila bingó, en það væri mismunun og hvernig væri svo sem hægt að ákeða hver er heppinn og hver er ekki heppinn. Annars held ég að ég hafi aldrei unnið neitt í bingó.... Kannski, vonandi, breytist það í kvöld;)
6. bekkingar voru allir rosalega fínir í dag, enda síðasti skóladagur þeirra í hinum Lærða Skóla. Ég óska þeim alls hins besta í framtíðinni, og að þau megi skemmta sér einstaklega vel á morgun. Og að þeim gangi vel í prófunum.
Jæja, nóg í bili
Elín Lóa

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home