Lestur
Síðastliðna þrjá daga hef ég lítið gert annað en að lesa. Það sem ég hef verið að lesa er bókin Pobby og Dingan eftir Ben Rice, sem ég fékk að láni hjá henni Unu, svo hef ég einnig verið að lesa Andlit Óttans eftir Minette Walters, sem ég fékk gefins fyrir að skrá mig í einhvern bókaklúbb á netinu.
Pobby og Dingan
Þessi bók er einstaklega falleg og vel skrifuð. Eins og Una minntist á commentakerfinu þegar hún mælti með þessari bók er hún stutt og fljótlesin, en það þýðir samt ekki að hún skilji þig ekki eftir ósnortinn. Það sem ég fann sérstaklega sterkt í þessari bók er hversu mikið nútímamaðurinn treystir á skilningarvitin. Hann getur ekki trúað án þess að geta séð, heyrt og helst snert til að fullvissa sig um að eitthvað sé til. Pobby og Dingan kemur einmitt mikið inn á trú þótt að hún geri það hægversklega og auðvitað getur hver túlkað hvað sem er eftir sínu höfði. Ég mæli hins vegar með þessari bók og þakka Unu fyrir að hafa bent mér á hana og lánað mér.
Andlit óttans
Ef þú ert að leita að spennusögu til aflestrar þá er þessi eitthvað fyrir þig. Sagan gerist á Bretlandi í dæmigerðu litlu sveitaþorpi þar sem gróusögurnar ferðast um á ljóshraða. Allt er með kyrrum kjörum þangað til að gömul kona finnst látin á heimili sínu. Var þetta sjálfsmorð eða hafði einhver ástæðu til að myrða hana? Grunsemdirnar færast hvað mest í aukana þegar erfðaskrá hennar er gerð opinber. Þetta er voða spennandi saga sem kemur inn á mörg svið mannlegs eðlis hvort sem það er gott eða slæmt, ást, hatur, losta, misnotkun, svik og prettir, heiðarleika og lygar. Ólíkt mörgum spennusögum sem ég hef lesið fannst mér endirinn á þessari ekki eins augljós. Sem er gott. Mér fannst endirinn samt ekki alveg nógu áhugaverður miðað við hvernig framvinda sögunnar hafði verið. En annars ætla ég ekkert að segja meira nema að endurtaka ef þú ert spennusagna áhugamaður þá bendi ég þér á þessa bók.
Næst aflestrar verður líklegast Norwegian Wood eftir Haruki Murakami, sem hún Una lánaði mér einmitt líka. Einnig stendur til að lesa How to kill a mockingbird og reyna að klára að komast í gegnum Samúel eftir Mikael Torfason, en ég hef ekki ennþá komist í gegnum annan kafla! Finnst eins og að ég verði að ljúka við a.m.k. eitt verk höfunds áður en ég mynda mér skoðun á honum. Bókin Milljón holur byrjaði einnig vel, en hana hef ég verið að lesa í hvert skipti sem ég stíg upp í strætó nr. 115 og ég ætla mér að klára hana. Einnig er Don kíkóti ofarlega á lista, en mig langar helst að lesa hana, eða reyna að lesa hana, á spænsku. Held að það sé hægt að nálgast hana á Borgarbókasafninu. Ég held að ég reyni að finna mér vinnu í framtíðinni þar sem ég get bara setið og lesið eitthvað sem mig langar til að lesa. Það yrði ljúft...

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home