laugardagur, maí 17, 2003

Sumarið er tíminn

Lyktin af nýslegnu grasi fyllir loftið, lóukvak og gleðilæti krakka. Sólin heldur sig mun lengur á lofti og er oftar en ekki að koma upp aftur þegar maður fer að sofa. Ég get ekki beðið eftir að klára þessi próf, fara út og öskra gleði/vor/sumar öskrinu mínu. Þá er líka venjan að taka á sprett og hlaupa eins hratt og maður getur af einskærri gleði. Já, sumarið er tíminn og tíminn er kominn. :)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home