Tattarata
Prófin eru skollin á og venjuleg gremja yfir leti síðust mánaða hefur gert vart við sig enn og einu sinni. En það er víst ekkert að gera við því.... Tölvufræðin hefur heltekið skrifborðið mitt og miklar pælingar og prófanir hafa átt sér stað í WORD og EXCEL forritinum í tölvunni minni... úff, þetta er ekki nógu sniðugt. Ég finn brjálæðið og stressið leggjast yfir allt saman.... Sólin gerir allt til að reyna að tæla mig, fá mig til þess að sleppa því að læra, hlaupa frekar út, beila á öllu og flýja.... En það sagði einhver við mig í dag að það væri engin lausn að flýja, kannski er það satt....
Allavega, "gleðilegan" próflestur. Maður verður bara gera sem best úr þessu eins og venjulega....:)
Allavega, "gleðilegan" próflestur. Maður verður bara gera sem best úr þessu eins og venjulega....:)
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home