"22 ferðalög" - KK og Maggi Eiríks
Seinnipartinn var ég stödd í Hagkaupum Skeifunni og heyrði þá allt í einu hljóma umræddan disk. Eftir skamman tíma fór þessi diskur að fara virkilega í pirrurnar á mér!!! Að mínu mati á svona tónlist ekki heima í bakgrunni stórmarkaðs! Það getur vel verið að þeir hafi ætlað að reyna að auka söluna á þessum disk, en það mistókst algerlega í mínu tilviku að minnsta kosti. Í staðinn fyrir að vekja með mér löngun til að vera lengur í búðinni varð hún þess valdandi að ég forðaði mér út! Þetta eru lög sem eiga heima í útilegurnni, Nú er ég ekki að setja út á KK og Magga Eiríks sem tónlistarmenn og ekki heldur út á þessi klassísku lög. Kannski það eina sem ég er að benda á er að þessi tónlist á frekar heima í bílnum á ferðalaginu eða í útilegunni, ekki í búðum.
En kannski er ég bara skrýtin...
Elín Lóa
En kannski er ég bara skrýtin...
Elín Lóa
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home