föstudagur, júlí 18, 2003

Foo Fighters

Mér finnst ég vera einstaklega heppin að hafa náð miða á þessa stórtónleika. Langar mig sérstaklega að þakka þeim sem sýndu mér þolinmæði því að ég svaf yfir mig og fyrir þá sem voru svona einstaklega sveigjanlegir í vinnunni að leyfa mér að fara og kaupa miða.

Stemmingin í röðinni var allsvakaleg en hún var frekar afslöppuð þangað til svona um klukkutíma fyrir opnun. Þá fór að bera á troðningi, panikki og ýtingum. Fólk var iðið að skúbba fólki til og frá. En ég tel að það hafi verið þess virði, jafnvel þótt að það séu einstaklega miklir möguleikar á því að það verði haldnir aukatónleikar...

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home