laugardagur, ágúst 16, 2003

Tilviljanir

Skrýtið hvað tilviljanir eru orðnar stór hluti af daglegu lífi, allavega hjá mér. Hafið þið ekki til dæmis lent í því að hugsa " hey ég ætla að hringja í Y" svo um leið og þú ert að fara að taka upp tólið þá hringir síminn. Og hver er annar er þá hinum meginn á línunni en Y.

Til dæmis í gær, þá voru ég og the uppsetjari að keyra og ég var einmitt að hugsa að ég myndi hitta einhvern úr vinnunni, og viti menn. Hver haldiði að hafi þá flautað á mig, allir þeir sem eftir voru úr vinnunni. Samkvæmt Atla og Magga þá voru þeir víst á leiðinni á hlaðborð á Pizza Hut ( og Steinunn ekki að vinna, iss;).Og já alveg rétt, Jói og Gugga, velkomin heim:)

Svipað gerðist 10 mínútum seinna, ég tók upp símann til að hringja en sagði um leið að ég myndi pottþétt mæta löggu. Sem betur fer svaraði enginn, því um leið og ég lagði símann frá mér, þá mættum við löggunni.

Það er því spurning hvort að þetta séu tilviljanir yfir höfuð...? Ég er farin að hallast að þeirri hugmynd að þetta séu allt einhverjar bylgjur sem við sendum frá okkur óafvitandi og að tilviljanir séu þá bara hugsanalestur (ESP). Þannig að þegar talað er um að einhver, A, hafi sent hugboð þá hafi sá sami notað þessar "bylgjur" til að senda skilaboð, óafvitandi auðvitað, og hinn aðilinn, B, móttekið þessi hugsanaskilaboð sem olli því að viðkomandi fór að hugsa um A og ákvað að hringja í hann eða eitthvað álíka.

En hvernig er þá hægt að útskýra einhverja hluti úr framtíðinni. Eins og þegar þú bara veist að þetta glas á eftir að detta og brotna, eða ef þú ert viss um að þú eigir að hella niður ef þú ferð með kaffibolla niður. Og svo, af því að þú fylgir ekki þessum hugboðum þá brotnar glasið og öll blöðin verða gegnvot af kaffi. En eru það bylgjur úr framtíðinni? Eða erum við kannski bara öll skyggn upp að vissu marki og þessi skyggni brýst fram í hugboðum um mismikilvæga hluti sem hjálpa okkur í núinu?

Já þetta finnst mér umhugsunarvert...

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home