miðvikudagur, ágúst 13, 2003

úff

já úff, því dj**ll voru síðust póstar væmnir+leiðinlegir. Það lítur út fyrir að ég þurfa að fara að hressa eitthvað upp á þetta!!!!!!

Síðasti dagurinn minn í vinnunni er í dag, er eiginlega ekki alveg tilbúin í að hætta strax en.......... það er allavega lokapartýið eftir *blink blink* sem verður líklegast hrikalegt (hrikalegt í góðri merkingu) ef það verðu eitthvað svipað fyrri partýum:o) Það er annars eitthvað fámennt hérna, þeir einu sem eru eftir eru Atli, Maggi, Oddur og Steini.... og ég....

Ræstitæknirinn

Ég er búin að ákveða að verða aldrei ræstitæknir, allavega ætla ég ekki að gera það að fullu starfi. En sem ræstitæknir í hlutastarfi á hinum ýmsu stöðum, hef ég komist í tæri við margt EN hvað er málið með að sturta ekki niður ?!?!?!?!?!?!?!?!? Þetta er ekki gleymska þar sem þetta gerist nánast á hverjum einasta degi á sama stað!!!!!!!!

Ég bið þá sem fannst þetta ógeðslegt komment afsökunar, en svona er líf ræstitæknisins í hnotskurn.....

Krít

Mismikið hef ég heyrt frá krítarförunum en ýmsir skandalar hafa víst komið upp sem ekki verður sagt frá hér....... Kannski helst vegna þess að ég fæ ekki að heyra allar sögurnar fyrr en þau koma heim...... hmmmmm..... Ég er hins vegar enn að bíða eftir póstkortunum.... Eins gott að þau séu á leiðinni annars............. ;)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home