miðvikudagur, september 17, 2003

The Ból!

Ég er að heltast úr lestinni í þessum blessaða bloggheimi. Það má varla snúa sér við og upp spretta blogg eins og gorkúlur. Sérstaklega má þar nefna ALLA í Bólinu fyrir utan Teit, sem ég býst ekkert við að fari að blogga í bráð.... Maður ætti kannski reyna að halda í við þau í skriftunum, held samt að það verði erfitt .

Annars er busaball á morgun, og salsa á föstudaginn og svo starfsdagur á laugardaginn þannig að það er nóg að gera:) Ekki slæmt það.

Morkinskinna

Hvílík tilfinning! Ég hélt á fyrsta eintakinu af Morkinskinnu í dag og ég nánast grét af gleði. Þetta er búið að vera erfitt og taugastrekkjandi en ég verð bara að segja að ég er rosalega ánægð með útkomuna!!! Og ég vona að þið sem verðið handhafar að bókinni verðið það líka:) It'll be yours soon....:)

Lag dagsins...

...er Fugitve motel með hljómsveitinni Elbow af nýja disknum þeirra, Cast of Thousands, sem kom einmitt út í síðustu viku.

Lifið heil!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home