miðvikudagur, september 10, 2003

TIL HAMINGJU!!!

Þær fréttir voru að berast hingað í félagsmiðstöðin að Hvíti Riddarinn hefði valtað yfir andstæðinga sína, FC CCCP. Mig langar til að óska þeim innilega til hamingju!

Annars var einstaklega mikil stemming hérna í Bólinu í kvöld, og skemmti fólk sér bara vel á opnu húsi. Þau undur og stórmerki gerðust annars að ég er að skána í borðtennis eða ping pong eins og það er nánast eingöngu nefnt hér í Bólinu. Þannig að Helga ég skora á þig þegar þú kemur heim frá DK að taka einn leik;) Ég ætla samt að fara varlega í fullyrðingar um betri frammistöðu, greinilegt er að ég þarf að leggja aðeins meiri áherslu á uppgjafirnar og það að smasha...

Festi kaup í einum sérlega góðum geisladisk núna barasta í gær, en það eru kúbversku snillingarnir í Buena vista social club. Mæli með honum!

Annars ætla ég að fara að klára og koma mér heim
Bið að heilsa....

EL

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home