sunnudagur, október 26, 2003

Helgin

Föstudagurinn og aðfararnótt laugardags einkenndust af mikilli skemmtun hlátri og að ég held almennri ánægju. Að minnsta kosti skemmti ég mér vel:) Ákváðum að hittast þrjár heima hjá Steinunni, áður en haldið var á bíbó fornmáladeildar á Vídalín, til að hita upp. Það voru semsagt ég, Steinunn og "wanna-be" MR-ingurinn hún Berglind okkar:) Þegar við loksins komum okkur af stað og á Vídalín var staðurinn pakkaður og hætt að hleypa inn. Með nokkrum bellibrögðum tróðum við okkur bókstaflega inn og er þar einni manneskju sérstaklega fyrir að þakka (you know who you are:) Takkedítakk:) Þegar inn var komið var svo heitt og mikill raki að þegar ég tók upp símann minn kom móða á skjáinn. Já þetta var svakalegt! Hitti þar sæg af yndælisfólki og skemmti mér bara vel í þann stutta tíma sem við stoppuðum þar.

Eftir miklar umræður fyrir utan Vídalín, og eftir að fjölgað hafði í föruneytinu, var stefnan tekin á Ara í Ögri en við ákváðum síðar að breyta áfangastað okkar og enduðum í teiti hjá Jóni. Einhvers staðar þarna á milli var Dagbjört næstum búin að keyra yfir okkur, allavega flautaði hún ansi mikið. Hún slóst einnig í för með okkur. Eftir mikinn hlátur yfir sketchum Smjatský í Grettisgötunni héldum við niðrí bæ til að fá okkur bita á Nonna. Ekki hlóg ég minna á leiðinni niður í bæ enda skemmtilegur hópur þar á ferð:) Sem sagt mjög ánægjulegt kvöld.

Í gær skellti ég mér síðan á kaffihús með henni Berglindi og röltum við upp og niður Laugaveginn, eins og sönnum Íslendingum sæmir á laugardagskvöldi ;) Og til að toppa það keyrðum við einu sinni niður hann líka;) hahaha, þá var maður búin að taka einn "laugara" það kvöldið. (verð samt að segja að mér finnst þetta ansi ljótt orð... en kannski er það bara ég...)

Var síðan að koma af sýningu á Hobbitanum hérna í Bæjarleikhúsinu í Mosó. Mjög flott sýning, en flest prik fær hún fyrir flotta búninga og góðar lausnir á ýmsum hlutum sem erfitt var að leysa í sviðsmynd. Leiðinlegt hvað það er samt dræm aðsókn eftir að maður sér hversu mikil vinna hefur verið lögð í þetta leikrit. Mæli því eindregið með því að fólk kíki í Mosó til að rifja upp söguna af Bilbó Bagga sem sumir lásu í 3. bekk. Veit að ef MR-ingar fjölmenna verður afsláttur á miðaverði þannig að það er ekki eftir neinu að bíða. Allir á Hobbitann:)

Lag dagsins
Pearl Jam- Nothing man

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home