þriðjudagur, október 28, 2003

Hin eilífa barátta

Á hverjum einasta degi síðan ég man eftir mér hef ég átt í hatrammri baráttu um nafnið mitt. Ég hef öskrað það og síendurtekið það, fyrir kennara, samnemendur, vini, kunningja, samstarfsmenn og ókunnuga. Stundum virðist ekkert ganga, stundum gefst ég upp, stundum er mér sama en stundum, stundum gengur allt upp. Málið er að ég er meiri Lóa en Elín en mest af öllu er ég Elín Lóa. Ef þú segir nafnið mitt hratt kemur það oft út eins og Elló eða eins og bróðir minn segir Elúa. Lílí, E-Lo eru líka viðurnefni sem virðast hafa fest við mig af einhverju leiti í mismunandi hópum. Sem er í fínu lagi. Bóndinn í sveitinni kallaði mig líka alltaf Lóu. Úti var ég kölluð Elííííín eða Elíncita, þeim þótti of hart að segja bæðið nöfnin. Ég fyrirgaf þeim það. Verst af öllu finnst mér samt að vera kölluð Ella. Ég er engin Ella. Ekki það að Ella sé ljót stytting á nafni en ég mun ekki svara ykkur ef þið kallið mig Ellu.

Kannski er þetta bara vænissýki í mér en ég er þó að minnsta kosti ein í ættinni um að vera utanveltu....

Skyldmenni dagsins

Ágeir Þórðarson; 1703
Prestur að Álptamýri "...dæmdur frá prestskap um 1745 fyrir illt orðbragð og kukl...".

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home