Pæling
Einhver, að ég held Berglind, sagði mér um daginn að það væri vísindalega sannað að ef þú segir eitthvað við einhvern nógu oft þá byrjar hinn sami að trúa því sem við hann er sagt. Ef eitthvað er til í þessari tilgátu, gæti þá verið að fólk hafi byrjað að trúa á guð einungis vegna þess að það var búið að segja svo oft við það að hann væri til að í raun höfðu þau ekki um neitt annað að velja en að trúa...? Er það nokkuð annað en heilaþvottur? Hmmm, en eitt veit ég að ef ég hefði alist upp í Ecuador væri ég eflaust kaþólsk og ef ég hefði alist upp á Indlandi væri ég eflaust hindúa-trúar. Þannig að ef maður lítur á þetta þá fer oft trú manna eftir því hvað er sagt við þá í æsku, eða hjá sumum seinna á ævinni. Það er náttúrulega ekkert algilt í þessum heimi og þetta er bara lítil saklaus pæling. Sumir finna einungis fyrir því seint á ævinni að þeir trúi á eitthvað, sumir aldrei og enn aðrir trúa alla ævina á það sama án þess að efast.
Sem betur fer erum við ekki öll eins.
Lag dagsins nr.2
U2- Sunday, bloody Sunday
Sem betur fer erum við ekki öll eins.
Lag dagsins nr.2
U2- Sunday, bloody Sunday
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home