Snúin aftur
Eftir að hafa borðað yfir mig af sambó-lakkrís sem Halla og Eva keyptu og eftir að hafa hugsað um Ecuador síðan ég kom úr salsa-tíma, ákvað ég að kíkja á Steinunni og Berglindi. Klukkan hálf 5 ákváðum við að fara á rúntinn. En þar sem ég var ekki með visst skírteini sem segir að þú hafir
leyfi til að keyra og allt morandi í löggum svo síðla nætur þá ákváðum við að fara frekar í áttina að Kjalarnesi því við álitum að það yrðu færri löggur þar. Enduðum svo á einhverjum malarvegi, símasambandslausar og syngjandi (eða réttara sagt öskrandi ) með Muse. Ákváðum að fara aftur heim þegar 16 km. voru í Þingvelli því við vorum ekki vissar með bensínmagnið.
Það er svolítið óhugnanlegt að keyra um í niða myrkri (á þetta að vera samsett eða ekki??) en engu að síður skemmtilegt.
Lifið heil

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home