fimmtudagur, nóvember 06, 2003

Hormónalykt

Andrúmsloftið var lævi bundið í gærkvöldi þegar rokk aðdáendur byrjuðu að safnast fyrir í Félagsmiðstöðinni Ból í Mosfellsbæ. Það voru ekki margir komnir þegar þrúgandi lykt færðist yfir alla félagsmiðstöðina. Þessi lykt magnaðist eftir því sem á leið, þ.e. eftir því hversu margir voru komnir í hús. Í félagsmiðstöðvarbransanum kallar fagfólkið þetta Hormónalykt, enda myndast hún þegar mikið af fólki með mikið hormónaflæði safnsast saman.

Annars voru tónleikarnir fínir, upprennandi stjörnur í rokkheiminum þar á ferð. Hlakka til að sjá hversu hátt þeir fara.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home