Vei blogg
Mér fannst vera föstudagur í fyrradag, sem var frekar slæmt, þar sem það var mánudagur.
Annars gerir fólk lítið þessa dagana nema rífast yfir útskriftarferðinni, og það fyndna er að það skiptir ekki máli um hvaða stað er rætt, fólk kemur alltaf með athugasemdir og skot til baka. Mikil illindi hafa skapast milli manna og svívirðingar fljúga. Einna hatrammastar eru deilurnar á milli Kýpur og Króatíu fólksins. Kýpur fólkið virðist ekki geta á nokkurn hátt ímyndað sér djammferð til Króatíu vegna skorts á skemmtistöðum á sama tíma og stuðningsmenn Króatíu til Kýpur vegna verðlags. Þetta er eitt af þessum dæmum þar sem það væri einstaklega þægilegt ef að allir hugsuðu eins og langaði að gera það sama.
En svo er ekki og kannski bara sem betur fer.
Annars má búast við auknum fjölda pósta á næstunni og lagfæringum á síðunni. Aðalástæðu þess má rekja til komandi prófa, en bloggtíðni virðist aukast þegar hún má minnst við sér.
Lifið heil.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home