mánudagur, desember 29, 2003

Næturvakt

Get ekki sofnað, eða nenni því kannski ekki. Var að ljúka við að horfa á einstaklega lélega hryllingsmynd. Mér brá einu sinni, ekki að það sé mælikvarði á lélegar myndir en þessi var einstaklega fyrirsjáanleg og tjah, bara leiðinleg. Þetta var formúlumynd með endi sem hefur margoft verið notaður, vona samt að þeir geri ekki framhald. Allavega þeir sem vilja vita hvaða mynd þetta er þá heitir hún Ghost-ship. En er ekki hugmyndin að þessum næturvöktum að horfa á myndir sem þú myndir kannski annars aldrei horfa á. Síðastliðin ár hefur það allavega að hluta til verið mottó. Um síðustu áramót horfðum við til dæmis á The Return of the Killer Tomatos, markmið næturvakta þessa árs er að horfa á fyrstu myndina, The Killer Tomatos.....

Annars hef ég í kvöld líka horft á Old school, The Bubble boy og Elling. Old school var bara nokkuð fyndin, Bubble boy var steikt og Elling var góð.

Þeir sem spyrja sig yfir hverju ég sé eiginlega að vakta þá er svarið flugeldar.

Farið vel með ykkur og gleðilega hátíð öll sömul!!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home