Gærkvöldið
Ég hef sjaldan skemmt mér eins vel og í gær. Ég byrjaði kvöldið á því að samgleðjast með Eddu og Stjána í brúðkaupi þeirra í Harðarbóli og var það hin fínasta veisla. Fengum við að bragða á ýmsum framandi réttum framreiddum af Humarhúsinu. Má þar meðal annars nefna léttsteikt og vel kryddað hvalkjöt sem var hið mesta lostæti þótt ég hafi verið treg í byrjun til að smakka það. Skötuselur, krabbasalat, túnfiskur, pestó og karrýkjúklingur, graflax og svo mætti lengi áfram telja. Eftir ræður og nokkur hvítvínsglös var Eyjólfur svo yndæll að sækja mig upp í Mos og keyra mig niður á Amsterdam þar sem Bragi nokkur hélt upp á afmælið sitt. Stoppaði stutt þar við, færði honum gjöf og tók Steinunni og Yngva með mér og var ferðinni heitið í Hafnafjörðinn þar sem Bó var einnig að halda upp á tuttugu árin . Vildi samt svo til að ég kom það seint að ég náði aðeins rútuferðinni í bæinn, sem var mjög skemmtileg þannig að ég tel víst að partýið hafi verið eftir því. Café Cultura stóð fyrir sínu og mér leið eins og ég væri aftur komin út. Vinsælu slagararnir sem spilaðir höfðu verið úti hljómuðu um kaffihúsið og létt salsa spor voru stigin. Á einhverjum tímapunkti settist ég niður hjá konu, sem ég þekkti ekki neitt, en komst síðar að hét María og var frá Puerto Rico og átti Ecuadorskan mann en bjó hins vegar í Connecticut. Og ég sem hélt að ég væri búin að gleyma allri spænsku, en sei sei nei (eins og Bó myndi segja) dælan fékk að ganga í um hálftíma! Stórskemmtilegt alveg. Ekki spurning að ég eigi eftir að leggja leið mína þangað aftur, kósý stemming og gott fólk og hér með útnefni ég Café Cultura einn af mínum uppáhaldsstöðum:) !!!
Svo héldum við á Grettisgötuna og ég og Hallgerður tókum netta syrpu í að spjalla um Ecuador. Gaman gaman gaman. Oh hvað mig langar mikið út. Ég freistaðist meira að segja til að leita að ódýrum flugfargjöldum þangað í dag....
Sem sagt, æðislegt kvöld :)
Svo héldum við á Grettisgötuna og ég og Hallgerður tókum netta syrpu í að spjalla um Ecuador. Gaman gaman gaman. Oh hvað mig langar mikið út. Ég freistaðist meira að segja til að leita að ódýrum flugfargjöldum þangað í dag....
Sem sagt, æðislegt kvöld :)
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home