Securitas
Ég stíg út úr bílnum, regnið bylur á gluggunum og vindurinn gnauðar á húsþakinu, fyrir innan dyrnar heyri ég hljóð úr viðvörunarkerfinu. Það er niðadimmt úti. Ég bið manneskjuna sem er á hinum enda símalínunnar að hringja í 1-1-2 ef eg skyldi óvart detta út, vona bara að síminn verði ekki batterýslaus. Skjálfhent opna ég hurðina, óska þess svo heitt að enginn óviðkomandi aðili munu veitast að mér. Geng hratt að kerfinu og slæ inn öryggisnúmerið mitt. Allt er hljótt. Hröðum skrefum geng ég að rofanum og kveiki ljósin. Eitt augnablik finn ég ró færast yfir mig. Það varir ekki lengi. Skyndilega er grænum bíl keyrt hratt upp innkeyrsluna. Hjartslátturinn verður örari, blóðið frýs í æðum mér og ég þori vart að anda. Skuggaleg vera nálgast ótt og þori hvorki að hreyfa legg né lim. Ég hugsa með mér ætti ég að hringja í lögguna? tryggingastofnun? útfarastofnun? Allt í einu er veran dularfulla komin inn á græna ganginn. Mér bregður, enda ekki furða, þetta er hann Maggi!!!
Nei ok, þetta var nú ekki nærri því svona dramatískt. Ég er samt skíthrædd við að koma þangað ein í myrkri, og það er aðeins einni manneskju að þakka, takk!!;) Reyndar hefur önnur manneskja séð um að viðhalda þessari hræðslu og vil ég þakka henni innilega fyrir líka.
Allavega, skömmu eftir að ég var búin að slökkva á kerfinu er bari?ð þungt á útidyrahurðina. Þegar við opnum stendur vígbúinn Securitas (skúritas) vörður fyrir utan vopnaður RISASTÓRU vasaljósi og að mér sýndist pínulítilli kylfu. Hann var með talstöð festa við öxlina á sér, enda í peysu sem var svona hermanna-peysu-wanna-be... Við komumst hins vegar að því að þetta er draumastarf Mústasins. Því hver sækir ekki í adrenalín"kikkið" sem fæst út frá því að fara inn í hús, þar sem allt er slökkt og hafa ekki hugmynd um hvað býður þín fyrir innan. Plús það að fá að vera með RISASTÓRT vasaljós. Þannig að ekki láta ykkur bregða þó að Mústasinn hverfi úr Bólinu á næstunni. Þið finnið hann hjá Securitas..... með RISASTÓRT vasaljós ;)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home