þriðjudagur, ágúst 24, 2004

Háskólanám smáskólanám

Fólk virðist ekki geta hætt að tala um tilvonandi háskólanám sitt, meiri hlutinn af þeim bloggsíðum sem ég lít á þessa dagana eru ekkert nema væl um hversu erfitt nám þeirra eigi eftir að vera. Þorbjörg talar um að hún þurfi að rannsaka þvagsýni, Erna heldur því fram að hún eigi ekki eftir að sjá dagsins ljós fyrr en 21.desember og svona heldur þetta áfram. Ég segi, þetta svokallaða háskólanám er EKKERT miðað við 6.bekk í MR!!

Svo legg ég til að fólk hætti að nudda salti í sárin og fari að læra fyrst þetta á eftir að verða svona erfitt.
Ég er ekki bitur, en þið megið sko barasta öll eiga ykkur og fara að dingla ykkur einhversstaðar!!!!
hrfmp

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home