fimmtudagur, desember 16, 2004

Jáhá

skrýtið að þurfa ekki að hafa samviskubit yfir því að vera ekki að læra. Skrýtið að geta leyft sér að glápa á sjónvarpið, thjah eins og áður segir án samviskubits.

Ég kláraði tvennt í dag

Jólaprófin! Þetta var orðið allt of langt.

Svo kláraði ég ökuskírteinisvesenið sem er búið að hrjá mig nú, hva, í all langan tíma. Þannig að þið sem fáið far hjá mér þurfið ekki að óttast lengur, ég er komin með skírteini;)

En endir boðar ávallt eitthvað nýtt. Og það er tvennt. Ég hóf lestur á þeim stað sem ég hætti fyrir próf á Alkemistanum og ætla mér að sofna út frá honum í kvöld:) Svo er ég, eftir rúma klukkustund, að fara að hefja jólavinnu mína hjá (svo ég vitni í Hrólf) ónefndu póstdreifingafyrirtæki með afgerandi markaðsforystu. Þar mun ég sjá um að keyra út jólagjafir og gleðja viðtakendur. Já gleði gleði gleði:) og hver veit, kannski á ég eftir að banka upp á hjá þér:)?!?

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home