laugardagur, desember 11, 2004

Prófavertíð

Þegar ég á að vera að læra fyrir próf, fer ég ávallt að gera eitthvað annað. Fór að glugga í bók sem kallast Perlur úr ljóðum íslenskra kvenna, sem mér áskotnaðist í 10. bekk fyrir góðan námsárangur í þýsku (yeah, those were the days....) og ákvað að fyrsta ljóðið sem ég myndi fletta upp á fengi að fljóta á bloggið....

Ljóð dagsins

Til mömmu

Þeir segja það heimskingjans hugarburð,
að handan við gröf komi dagur.
Þeir sjá ekki neitt nema harðlæsta hurð,
hver hugsjón verður sem gróðurlaus urð.
En eg sé, að aftur rís dagur,
mamma, sá morgunn er fagur.

Bína Björns
1916

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home