laugardagur, desember 11, 2004

Sund

Það er alltaf jafn yndislegt að fara í sund að kvöldi til þegar allt er dimmt. Skellti mér áðan og dró brósa með. Við skemmtum okkur konunglega. Hitti líka Sigurbjörgu í U-inu, alltaf jafn gaman að hitta hana:)

Það sem ég hins vegar skil ekki er afhverju fólk getur ekki synt í hring á sundbrautunum? Það myndast bara kaos á brautunum og allir klessa á alla. Eins og hvað var með einn dúddann, hann fór allt í einu bara að gera háar hnélyftur á fjölmennri braut, ég veit ekki hversu oft fólk synti á hann. Ég var því ekki lengi að skipta um braut þegar ég sá eina lausa;)

Lag dagsins

Eða kannski frekar hljómsveit dagsins, Bajafondo Tangoclub. Argentínsk - Uruguaysk hljómsveit, sem blandar saman tangó og electrónískri tónlist. Ótrúlega flott blanda, spiluðu einmitt á Roskilde nú í sumar þar sem mín kæra systir sá þá og benti mér svo á hljómsveitina þegar hún kom heim. Ef þið hafið tök á að kíkja á hljómsveitina þá mæli ég með því:) (virkar ekki í mozilla).

Í uppáhaldi hjá mér þessa dagana eru Montserrat og Perfume

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home