Úr dvalanum rís
Nú árið er liðið og fyrsti mánuður þess nýja á ekki mikið eftir. Ég hef mikið hugleitt hvað ég skyldi hér skrifa, því ef satt skal frá segja, hef ég verið annsi hugmyndalaus undanfarið. Oft hef ég sest fyrir framan skjáinn, skráð mig inn á blogger.com og start inn í blámann... Ég ákvað því loks að gera upp síðasta ár, ekki með þeim atburðum sem áttu sér stað, heldur í þeim bókum sem ég las árið 2004. Ég verð að viðurkenna að þær hefðu mátt vera fleiri og margar þessara bóka er í tengslum við skólann (ekki endilega að það sé slæmt) en þær eru annsi margar sem liggja enn á náttborðinu og bíða lesturs.
Bækur ársins 2004 voru hins vegar 17. Tvær þeirra voru laufléttar spænsku upprifjanir, ein var í tengslum við kjörbókarritgerð í íslensku, tvær tengdar ensku tímum og fjórar tengdar bókmenntum.
Janúar

Hótel sumar - Gyrðir Elíasson ; Lesin fyrir kjörbókarritgerð í íslensku. Ákaflega ljóðrænar lýsingar.
Ljónið, nornin og skápurinn - C.S.Lewis ; Endurupplifun barnæskunnar
Harry Potter and the order of the Pheonix - J.K. Rowling ; Una kom mér á bragðið á Harry Potter í 9. bekk. Það æði hefur ekki enn runnið af mér.
La septima campanada - Alfredo Gomez Cerda ; Tilraun til að viðhalda spænskunni.
Febrúar
Lullaby - Chuck Palahniuk ; Úr bókasafni Erlu Bjarkar.
Death of a Salesman - Arthur Miller ; Leikrit lesið fyrir ensku.
Apríl
The Remains of the Day - Kazuo Ishiguro ; Lesin fyrir ensku sem kjörbók.
Júní
Sólarsaga - Sigurbjörg Þrastardóttir ; Ljóðræni stíllinn hennar Sigurbjargar og líkingar hennar heilluðu mig afskaplega mikið.
The Da Vinci code - Dan Brown ; Bókin sem nánast allir voru búnir að lesa þegar ég byrjaði að fletta henni. Hefði viljað vera búin að lesa hana áður en Da Vinci lykils fárið byrjaði.
Ágúst
Anna, Hanna og Jóhanna - Marianne Fredriksson ; Örlagasaga þriggja kynslóða kvenna.
September
Hamskiptin - Franz Kafka ; Lesin fyrir bókmenntir með eflaust bestu byrjun á bók sem fyrirfinnst.
Manntafl - Stefan Zweig ; Ég held ég geti aldrei þakkað Braga nægilega fyrir að hafa bent mér á þessa bók.
Nóvember
Glataðir snillingar - William Heinesen ; Lesin fyrir bókmenntir, saga snillinga í litlu færeysku þorpi.
Óbærilegur léttleiki tilverunnar - Milan Kundera ; Fyrir bókmenntir, samspil þunga og léttleika, mikil og góð persónusköpun.
Desember
La vida es un tango - Dolores Soler-Espiauba ; Lesin í leiðum 115 og 25 á leiðinni heim frá síðasta skóladegi haustmisseris. En mikið var þessi bók hræðilega léleg.
Meistarinn og Margaríta - Mikhaíl Búlgakov ; Fyrir bókmenntir. Annúska og sólblómaolían?! Já hvað vitum við svo sem sem um framtíð okkar okkar?
Múrinn í Kína - Huldar Breiðfjörð ; Gangan langa eftir múrnum.
Það sem af er liðið ári hef ég afrekað að ljúka við Alkemistann eftir Paulo Coelho og einnig Söguna um herra Sommer eftir Patrick Süskind. En hugmyndin var að lesa Ilminn eftir Süskind aftur fyrir fyrirlestur í bókmenntum, en ég las hana fyrir svona 4 eða 5 árum. Ef þið hafið einhverjar aðrar hugmyndir um fyrirlestrarbók þá endilega skellið þeim á afskiptakerfið.
Þær bækur sem eru í lestri þessa stundina eru hins vegar Samkvæmisleikir eftir Braga Ólafsson, Sjálstætt fólk eftir Kiljan og ég er örlítið byrjuð að blaða í Guantánamo eftir David Rose en afskaplega lítið þó.
Vona að þessi afskaplega langa færsla hafi glatt hjörtu einhverra og þið hin sem ekki nenntuð að lesa svona lengi þurfið ekki að hafa áhyggjur. Ég elska ykkur samt.
Yfir og út.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home