fimmtudagur, febrúar 03, 2005

Næturævintýri

Á einhvern óskiljanlegan hátt tókst klaufanum mér að reka hausinn bylmingsfast í skrifborðstól þegar færa átti til prentsnúru milli tölva. Úr þessu virðist ætla að spretta hið myndarlegasta horn og það kæmi mér ekki á óvart þótt að það fengi á sig skemmtilega liti á næstu dögum. Til að ímynd mín skerðist ekki á neinn hátt vegna þessa klaufaskapar hef ég ákveð að ljúga að öllum að ég hafi skallað einhvern.
Maður verður víst að halda „kúlinu“...

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home