mánudagur, mars 07, 2005

Gott djamm, gott fólk og gríðarleg stemming

Árshátíð Bólfélaga var haldin með pompi og prakt á laugardaginn. Þvílíkt og annað eins:) Imba og Atli pósuðu í þemanu, en umræðan um það þema fór algjörlega fram hjá mér. En þetta var afskaplega skemmtilegt kvöld:) og ég held að engir hurðarhúnar hafi horfið í þetta skiptið;)

Annars fóru laugardagurinn og sunnudagurinn aðallega í myndatökur sem ég vona að hafi gengið vel:) Mig langar einnig að biðja módelin á sunnudaginn afsökunar á því að ég lét þau hoppa svona lengi í skeljasandinum. Ég vona að fætur þeirra hafi ekki orðið fyrir of miklum skaða af þeim völdum;)

Lag dagsins
Dream Brother - Jeff Buckley af disknum Live A L'Olympia.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home