Lítil prinsessa
Ég var að eignast litla frænku:). Það er ekki enn búið að nefna hana, svo ég viti, þannig að ég geri mér enn vonir um að hún fái nafnið Elín Lóa, enda fæddist hún með jafn mikið og dökkt hár og ég gerði. Einnig var hún svipað löng og thja, ef bara ekki jafnmargar merkur líka;).
Annars grunar mig að Valgeir frændi (afinn) sé í skýjunum, honum hefur alltaf langað í eitt stykki stelpurófu og ekkert gengið þrátt fyrir fjóra syni og tvo sonarsyni.
Svo langar mig líka bara að óska Ævari og Beggu innilega til hamingju með litlu hnátuna:).
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home